María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, og Ingileif Friðriksdóttir fjölmiðlakona eiga von á barni. Fyrir eiga þær soninn Þorgeir sem María Rut eignaðist áður en leiðir þeirra Ingileifar lágu saman.
Von er á barninu í ágúst en það er Ingileif sem gengur með barnið. Eins og gefur að skilja er fjölskyldan í skýjunum. María Rut og Ingileif gengu í hjónaband síðasta sumar á Flateyri.