„Nú getur hann verið einn heima!“

Björg Valgeirsdóttir skrifar um aðstæður foreldra sem eru útivinnandi og …
Björg Valgeirsdóttir skrifar um aðstæður foreldra sem eru útivinnandi og eiga börn á aldrinum sem hún nefnir eftirlitslausa aldurinn. Ljósmynd/Aðsend

Björg Valgeirsdóttir birti færslu á Facebook þar sem hún lýsir stöðu foreldra ungra barna í Reykjavíkurborg. Hún talar um aldur hans Fróða sem er 9 mánaða sem eftirlitslausa aldurinn. „Nú getur hann verið einn heima á meðan við foreldrarnir erum í vinnunni. Húrra fyrir honum! Eða hvað?“   

Björg talar um í færslunni að nú þegar hafi foreldrarnir ráðstafað orlofsréttindum sínum til skertra tekna úr fæðingarorlofssjóði í jafn langan tíma og barnið er gamalt. Foreldrarnir eru bæði á vinnumarkaðnum, en enga daggæslu sé að fá fyrir barnið. 

„Fróði er fæddur 30. apríl 2018 og svörin sem við höfum fengið frá Reykjavíkurborg eru þau að aðeins börn fædd í janúar og febrúar sama ár fái pláss á leikskóla í haust. Okkur hefur verið ráðlagt að sækja um á einkareknum leikskólum og hjá dagforeldrum.

Við framangreint eru nokkrar athugasemdir gerðar:

1) Við erum búin að sækja um hjá öllum einkareknu leikskólunum í borginni, með eða án ungbarnadeilda, og þar er hann á biðlista. Öllum stjórnendum þar ber saman um að hann komist ekki að fyrr en í fyrsta lagi í haust. 

2) Við erum búin að sækja um hjá öllum þeim dagforeldrum í borginni sem okkur hefur tekist að fá meðmæli um og/eða getum hugsað okkur að láta hann dvelja hjá í 8 klukkustundir á dag. Alls staðar er hann á biðlista og allir hafa svarað okkur þannig að hann komist ekki að fyrr en í fyrsta lagi í haust nema eitthvað óvænt komi upp á. 

3) Við erum NÚNA byrjuð að vinna. Svör um komandi haust gera því ekkert fyrir okkur Í DAG. 

4) Takk mamma, þú ert best. Takk vinnuveitendur fyrir að láta mig vita að það verði fundið út úr því hvað við gerum dagana sem mamma getur ekki passað. 

5) Það er ekkert sanngjarnt við það að mamma sé bundin heima yfir mínu ungviði, á vinnutíma, velflesta virka daga. Eldri kona sem hefur skilað sinni pligt til samfélagsins á að fá að njóta þess að vera ekki í vinnu. Það er heldur ekki sanngjarnt að við foreldrar hans séum sakbitin yfir því alla virka daga að binda hana heima á okkar vinnutíma, þó við vitum hve mikið hún dýrkar barnið. 

6) Við borgum okkar skatta og gjöld eins og allir aðrir löghlýðnir borgarar. 

7) Við fáum engin gagnleg svör frá Reykjavík, sem ekkert hefur gert til að bæta stöðuna undanfarin kjörtímabil. Staðan hefur raunar versnað umtalsvert eins og málin horfa við okkur, sem vorum einnig með aprílbarn fyrir tæpum 5 árum, þá komið í daggæslu á sama árstíma. 

8) Ríkið kemur ekki til móts við okkur með frekari greiðslum úr fæðingarorlofssjóði vegna stöðunnar. 

9) Reykjavík lofar engu fyrir barnið mitt fyrr en það verður 18 mánaða hið minnsta. Hvað eigum við að gera á meðan? Það eru 9 mánuðir sem við þurfum að brúa hér.

10) Ef fer sem horfir kemst hann raunar ekki á leikskóla fyrr en hann verður 28 mánaða, haustið 2020, rétt eins og systir hans haustið 2015. 

11) Ég sé ekki eftir örðu af fjármunum sem ég hef ýmist horft á eftir vegna tekjuskerðingar í fæðingarorlofum, hef greitt eða mun greiða fyrir elskulegu börnin mín sem ég unni svo heitt. Hins vegar spyr ég mig hvort það sé sanngjarnt, ef fer sem horfir, að við foreldrar Fróða greiðum í 10 mánuði lengur, mun hærri gjöld vegna daggæslu hjá dagforeldri, en barn sem fæddist í febrúar 2018 og kemst að í leikskóla í haust.

Að endingu spyr ég: Hvað er til ráða? Hvað má gera NÚNA til að bregðast við úrræðaleysi fyrir börn á aldrinum 9-18 mánaða í Reykjavíkurborg sem eru NÚNA ekki með daggæslu en foreldra sem eru eða vilja geta verið á vinnumarkaði?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert