Ólétt og braut klósettið

Jessica Simpson birti mynd á Instagram eftir klósettóhappið.
Jessica Simpson birti mynd á Instagram eftir klósettóhappið. skjáskot/Instagram

Þriðja meðganga söngkonunnar Jessicu Simpson hefur reynt á og virðist sem allt gangi á afturfótunum hjá henni. Á dögunum braut hún klósettið þegar hún ætlaði að láta fara vel um sig. 

„Viðvörun. Ekki halla þér aftur á klósettinu ólétt,“ skrifaði hin ólétta Simpson á Instagram og birti mynd af sér með setunni sem fór af. 

Fylgjendur Simpson voru hæstánægðir með sögu hennar en þeir hafa verið duglegir að þakka henni fyrir að sýna ekki bara glansmynd af sér og meðgöngunni á samfélagsmiðlum. Simpson hefur áður birt mynd af fótum sínum sem voru svo þrútnir að hún komst ekki í skó. 

Það fer þó að styttast í komu barnsins en Simpson tilkynnti í september að hún ætti von á barni með eiginmanni sínum, Eric Johnson. 

View this post on Instagram

Warning...Don’t lean back on the toilet when pregnant 🤦🏼‍♀️

A post shared by Jessica Simpson (@jessicasimpson) on Feb 12, 2019 at 5:40pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert