Draslherbergjakökur fyrir táninginn?

Draslherbergjakökur eru vinsælar um þessar mundir fyrir táningsafmæli ef marka …
Draslherbergjakökur eru vinsælar um þessar mundir fyrir táningsafmæli ef marka má Pinterest.

Það getur reynt talsvert á taugarnar að ala upp táning að mati sumra foreldra. Til að gera lífið auðveldara og átta sig á því að táningar eru um margt líkir, getur verið gaman að skoða það nýjasta hverju sinni þegar kemur að táningum. Á Pineterst má finna margvíslegar afmæliskökur í anda draslherbergja táninga. 

Það léttir lund að skoða slíkar kökur. Sér í lagi þegar kökurnar minna foreldra á að þeirra táningar eru kannski ekki svo ólíkir öðrum táningum víðs vegar um heiminn. Að taka til í herberginu og að raða eigin dóti er kannski ekki á forgangslista þeirra allra. En kökurnar eru frábærar og vel útfærðar margar hverjar. 

Barnavefur mbl.is mælir ekki endilega með svona kökum á afmælisdegi unglinga, þótt það geti verið ótrúlega gaman að skoða hvað fólki dettur í hug þessa dagana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert