Krúttbangsinn alveg eins og pabbinn

Miles litli er ótrúlega líkur föður sínum, John Legend.
Miles litli er ótrúlega líkur föður sínum, John Legend. Samsett mynd

Fyrirsætan og athafnakonan Chrissy Teigen deildi nýverið mynd af níu mánaða gömlum syni sínum sem hún á með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum John Legend. Eins og sést á myndinni er sonurinn ótrúlega líkur föður sínum. 

People greinir frá því að Teigen hafi ráðlagt konum í gríni að halda fram hjá eiginmönnum sínum með mönnum sem væru nákvæmlega eins og þeir. 

Er þetta annað barn hjónanna sem eiga líka hina tveggja ára gömlu Lunu. Teigen hefur áður greint frá því að þau hjónin hafi þurft að fara í frjósemisaðgerðir til þess að eignast börn sín.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert