Harry spurði hvort barnið væri sitt

Meghan og Harry í Marokkó.
Meghan og Harry í Marokkó. mbl.is/AFP

Meghan hertogaynja var kasólétt þegar hún og Harry Bretaprins heimsóttu Marokkó um helgina. Þeim var að sjálfsögðu óskað til hamingju með væntanlegan erfingja og nýtti Harry tækifærið og æfði sig í að segja pabbabrandara. 

Pabbabrandarar eru misgóðir og það sama má segja um brandarann sem BBC náði á myndband. 

„Ha? Ertu ólétt,“ sagði Harry í gríni. „Er það mitt?“ Meghan hló að eiginmanni sínum og fannst greinilega brandarinn nokkuð fyndinn. Engin leið er fyrir Meghan að fela óléttukúluna núna enda skagar hún út eins og klettur. 

Harry og Meghan.
Harry og Meghan. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert