Drake dýrkar son sinn

Drake dýrkar strákinn sinn.
Drake dýrkar strákinn sinn. AFP

Kanadíski tónlistarmaðurinn Drake reynir að tala við son sinn, Adonis, á hverjum degi á FaceTime að sögn heimildarmanns TMZ. Soninn Adonis á Drake með hinni frönsku Sophie Brussaux.

Drake og Brussaux eru ekki í sambandi, en þau eignuðust Adonis fyrir tæpu ári síðan. Foreldrasamband þeirra er þó gott að sögn vina Drake og er lítið um vandræði. Drake er mikið upptekinn við að koma fram á tónleikum og að semja tónlist sína en hann flýgur Brussaux og Adonis reglulega til sín. 

Drake er sagður duglegur við að monta sig af syni sínum og sendir fjölskyldu sinni og vinum myndir og myndbönd af honum reglulega. 

Brussaux er fædd og uppalin í Frakklandi og átti Adonis í Frakklandi. Hún er fyrrverandi klámstjarna en hefur lagt meiri áherslu á listsköpun síðustu ár og af Instagram að dæma er hún nokkuð fær listmálari.

Þau mæðgin búa sem stendur í New York í Bandaríkjunum. Brussaux er sögð ala soninn upp á alþjóðlegan hátt og talar við hann á bæði frönsku og ensku.  

View this post on Instagram

Infinite and unaltered happiness ❤️ I wish on each and everyone of you that kind of Love. Seriously.

A post shared by Sophie B. (@sophieknowsbetter) on Aug 21, 2018 at 1:12pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert