Ekkert stress eða vesen í fermingunni

Baldur Hrafn Ákason og Áslaug Hulda Jónsdóttir.
Baldur Hrafn Ákason og Áslaug Hulda Jónsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Sonur Áslaugar Huldu Jónsdóttur og Sveins Áka Sveinssonar, Baldur Hrafn Ákason, mun fermast 14. apríl. Áslaug Hulda segist vera í ágætis æfingu að vera foreldri fermingarbarns því eldri sonur hennar, Bjarni Dagur, fermdist fyrir tveimur árum. Allar veitingar í veislunni verða heimagerðar og leggur húsmóðirin áherslu á að sleppa stressi og veseni. 

Hvernig hefur fermingarundirbúningur gengið?

„Hann gæti ekki gengið betur enda varla byrjaður! Baldur Hrafn fermist borgaralega hinn 14. apríl og því nægur tími til stefnu – og það fer mér ágætlega að gera allt á síðustu stundu,“ segir Áslaug Hulda.

Hvaða óskir er fermingarbarnið með?

„Hann vill hafa sem flesta gesti en að mér læðist sá grunur að það tengist gjafamagni. En hann er mikill matgæðingur og hefur skoðanir á því og hugsar það með okkur hvernig veitingar verður boðið upp á – það er skemmtilegt. Svo vill hann ekkert vesen, honum leiðist vesen,“ segir hún.

Áslaug Hulda og eiginmaður hennar, Sveinn Áki Sveinsson, eru mikið stemningsfólk og verður fermingarveislan haldin á heimili þeirra í Garðabænum. Þegar hún er spurð að því hvernig þau muni skipuleggja fermingardag sonarins kemur í ljós að stressið verður í lágmarki.

„Stress skemmir alla stemningu, það má því ekkert flækja hlutina of mikið. Bara að njóta. Mitt ráð er því að hafa veitingar einfaldar, að minnsta kosti þannig að þú þurfir ekki mikið að vera að vesenast með þær meðan á veislu stendur. Skemmtilegast er að geta notið með gestunum,“ segir hún.

Verður eitthvert þema í veislunni?

„Nei, ekkert þema. En ég mun kaupa falleg blóm í blómabúðinni Auði á Garðatorgi, lifandi blóm gera allt fallegra. Poppum svo upp stemninguna með flottum helíumblöðrum frá vinkonum mínum í Pippu.“

Hvað ætlið þið að bjóða mörgum?

„Þetta verða um sjötíu gestir, við eigum litla fjölskyldu en alltof marga vini.“

Verða veitingar pantaðar eða gerið þið sjálf?

„Við gerum veitingarnar sjálf. Ég er afleitur bakari enda krefst það nákvæmni og þolinmæði – og ég hef hvorugt. Hugsa að við gerum eitthvað svipað og hjá eldri bróðurnum, þá vorum við með nautakjöts- og sushi-salat – og svo eitthvað sætt til að loka maganum.“

Hvernig var þinn fermingardagur?

„Minn fermingardagur var ánægjulegur og ég á góðar minningar frá honum. Gaman að segja frá því að við Áki, eiginmaður minn, fermdumst sama dag, í sömu kirkju enda bæði alin upp í Garðabæ og við vorum saman í bekk í barnaskóla. Og nú styttist í það að yngri drengurinn okkar fermist.“

Hvernig varstu klædd og greidd? Áttu ennþá fermingarfötin?

„Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum var eitthvert dáta-þema í öllum búðum korter í mína fermingu. Ég fermdist því í dökkbláum matrósakjól og hárið tekið upp til hliðanna með hvítum silkiborðum. Ég verð Svövu í 17 og Lilju í Cosmo ævinlega þakklát eða þannig. Ég á kjólinn ekki lengur en man að ég gleymdi að fara í hvíta blúndusokka sem áttu að toppa múnderinguna á fermingardaginn, fattaði það daginn eftir.“

Hvað finnst þér mikilvægast að foreldrar fermingarbarna hafi í huga?

„Að þessi dagur snýst um fermingarbarnið og mikilvægt að hlusta á og og fara eftir væntingum þeirra. Ferming er stór dagur hjá fjölskyldu, dásamlegur dagur. Það þarf ekki allt að vera fullkomið þennan dag, bara að njóta,“ segir hún.

Bjarni Dagur og Baldur Hrafn Ákasynir á fermingardegi þess fyrrnefnda …
Bjarni Dagur og Baldur Hrafn Ákasynir á fermingardegi þess fyrrnefnda fyrir tveimur árum.
Áslaug útbýr allar veitingar sjálf.
Áslaug útbýr allar veitingar sjálf.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert