Oliver Nordquist hlakkar til fermingarinnar

Oliver Nordquist.
Oliver Nordquist.

Oliver Nordquist er í Hagaskóla og mun fermast á þessu ári. Hann mun fermast í kirkju, þar sem hann er trúaður. Fötin skipta máli sem og veitingarnar að hans mati. 

Oliver er búinn að vera í fermingarfræðslu síðan síðasta sumar og mætir í messur þess á milli.

María Gréta Einarsdóttir móðir hans og Róbert Aron Magnússon faðir hans hafa verið að aðstoða með undirbúninginn. Eins hafa ömmurnar verið duglegar að leggja sitt afmörkum.

„Varðandi undirbúninginn þá pöntuðum við Brynja Nordquist, amma hans, sal fyrir 15 mánuðum og verður veislan og fermingin sjálf á afmælisdegi hennar.

Við ákváðum að leigja ljósmyndabás – til að hafa í veislunni til að eiga minningar þar sem við ákváðum að hafa ekki ljósmyndara. Við eigum þessar fínu myndir eftir Sögu Sig úr fermingarmyndatöku Galleri 17 og munum nota eina í boðskortið.“

María segir Oliver með mjög ákveðnar skoðanir þegar kemur að veislunni. „Það skiptir máli að hans mati að honum þyki veitingarnar í veislunni góðar enda finnst honum oft í veislum ekkert sérstaklega mikið fyrir hann á boðstólnum.“

Oliver Nordquist sat fyrir í fermingarauglýsingu fyrir Galleri Sautján.
Oliver Nordquist sat fyrir í fermingarauglýsingu fyrir Galleri Sautján.

Vil hafa girnilegar veitingar á boðstólnum

Oliver vill hafa hamborgara og annað góðgæti að sögn móður hans. „Litlir hamborgarar, skúffukaka og nammibar er málið. Ég er búin að panta svona nammibars-sett af Ebay með 10 krukkum, töngum og pokum og svo fær hann að velja hvað hann vill hafa í þeim. Einnig mun Svana amma hans baka kransaköku með dyggri aðstoð frá mér fyrir veisluna enda bakar hún ofsalega góða kransaköku og er það ákveðin hefð að ein slík sé á boðstólum frá henni í veislum í fjölskyldunni.“

Oliver segist hlakka til fermingarinnar sem verður þann 13. apríl í Neskirkju.

Hvernig verður fermingin?

„Ég fermist í kirkju um hádegisbil og svo verður veisla seinni partinn.“

Hlakkar þú til fermingarinnar?

„Já mjög mikið – ég er búinn að vera að bíða spenntur eftir þessu lengi.“

Langar í ferðalag og pening í fermingargjöf

Hvað langar þig í í fermingargjöf?

„Mig langar að fara til Liverpool á fótboltaleik. Eins væri gaman að fá pening upp í svona ferð.“

Í hverju ætlarðu að vera?

„Skyrtu og dökkum gallabuxum úr Galleri 17 og Yeezy skóm.“

Hvernig var að taka þátt í fermingarmyndatöku 17?

„Mjög gaman. Við fengum góðan mat og það var þægilegt. Í raun fannst mér þetta bara einfalt og skemmtilegt.“

Ætlar ekki að verða fyrirsæta

Nú er amma fyrirsæta og pabbi þinn var það líka – er þetta eitthvað sem þú ætlar að leggja fyrir þig?

„Nei alls ekki – ég held ég verði ekki fyrirsæta. Mig langar að verða körfuboltamaður. Hér heima eða erlendis. Mér finnst bara gaman að spila körfubolta og það er það sem skiptir mig mestu máli.“

Ertu trúaður?

„Já ég er trúaður. Ég er með mína barnstrú, þannig að ég hef alltaf trúað á Guð frá því ég var lítill. Í fermingarfræðslunni vorum við ekki að tala svo mikið um Jesú og Guð, heldur meira hvernig kærleikurinn og trúin tvinnast inn í lífið. Það var áhugaverð nálgun.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert