Undirbýr komu barnsins sem guðfaðir

Meghan og Harry.
Meghan og Harry. mbl.is/AFP

Harry Bretaprins verður að öllum líkindum faðir í fyrsta sinn í næsta mánuði. Hann fékk þó hlutverk guðföður um síðustu helgi þegar frænka hans, Zara Tindall, treysti honum fyrir hlutverkinu þegar dóttir hennar, hin 10 mánaða gamla Lena, var skírð. 

Á sunnudaginn mættu þau Harry og Meghan til kirkju ásamt Elísabetu drottningu og Önnu prinsessu. Daily Mail greinir frá því að Harry hafi verið treyst fyrir guðföðurhlutverkinu en bróðir hans Vilhjálmur og Katrín kona hans létu ekki sjá sig.

Það er ekki sjálfsagt að drottningin mæti í fjölskyldusamkomur sem þessar en hún mætti ekki þegar Lúðvík litli var skírður í fyrra. 

Zara og Mike Tindall létu skíra dóttur sína um helgina.
Zara og Mike Tindall létu skíra dóttur sína um helgina. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert