Ég trúi á það góða í fólki

Sigrún Tinna Atladóttir er spennt fyrir fermingardeginum sínum.
Sigrún Tinna Atladóttir er spennt fyrir fermingardeginum sínum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigrún Tinna Atladóttir fermist 31. mars í Lindakirkju í Kópavogi. Hún er mjög spennt fyrir fermingardeginum enda hefur hún beðið eftir sínum degi síðan stóri bróðir hennar, Pétur Steinn Atlason, menntaskólanemi og leikari, fermdist fyrir þremur árum. 

Hvaða væntingar ertu með varðandi fermingardaginn?

„Ég er mjög spennt og er búin að ímynda mér þennan dag alveg síðan stóri bróðir minn fermdist fyrir þremur árum. Ég held að þetta verði ótrúlega skemmtilegur dagur og ég hlakka mikið til að eyða honum með fjölskyldu og vinum,“ segir Sigrún Tinna.

Ertu með ákveðnar hugmyndir um hvernig þú vilt hafa þína fermingu?

„Ég hef ákveðna hugmynd um hvernig þessi dagur mun verða. Um morguninn græjar fjölskyldan sig og við förum í kirkjuna. Eftir það verður veislan og svo förum við heim og ég opna gjafirnar.“

Kjóllinn er sparilegur með blúndu að aftan. Hún fékk kjólinn …
Kjóllinn er sparilegur með blúndu að aftan. Hún fékk kjólinn í Galleri Sautján. mbl.is/Kristinn Magnússon

Er búið að ákveða hvernig veitingar verða?

„Já, við erum svona næstum búin að ákveða veitingarnar. Við ætlum að hafa smáborgara frá Hamborgarafabrikkunni, sem verða aðallega fyrir okkur krakkana og yngri gesti. Svo verður allskonar annað, ostabakki með brauði og svo auðvitað fermingarkakan ásamt allskonar sætum bitum.“

Færð þú að ráða öllu eða eru foreldrar þínir með ákveðnar skoðanir?

„Þetta er auðvitað minn dagur og ég hef mínar skoðanir en við erum búin að taka flestar ákvarðanir saman.“

Ertu búin að finna fermingarföt?

„Já, ég er búin að finna fermingarfötin mín. Kjóllinn minn er hvítur og mjög einfaldur að framan en er svo með fallegri blúndu í bakið og hann er úr Gallerí 17. Skórnir mínir eru hvítir Tommy Hilfiger skór sem við pöntuðum á netinu.“

Hvað dreymir þig um í fermingargjöf?

„Ég hef ekki mikið hugsað um það en það væri gaman að fá skartgripi, eitthvað fallegt í herbergið væri líka skemmtilegt. En einnig finnst mér finnst líka sniðugt að fá peninga eins og margir fermingarkrakkar, því þá getur maður keypt það sem maður vill.“

Trúir þú á guð?

„Já, ég trúi á guð og það góða í fólki og að það sé til einhver æðri máttur.“

Hvað lærðir þú af fermingarfræðslunni?

„Ég er búin að læra heilmikið í vetur á því að vera í fermingarfræðslu. Ég er búin að læra mikið um samskipti, samfélagið og virðingu og að mínu mati er mikilvægt að krakkar fái að vita meira um það. Það er líka skemmtilegt í fermingarfræðslu upp á félagsskapinn að gera eins og að hitta alla krakkana sem eru í öðrum skólum.“

Sigrún Tinna ætlar að hafa hárið slegið á fermingardaginn sinn.
Sigrún Tinna ætlar að hafa hárið slegið á fermingardaginn sinn. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert