Herbergi frægasta krílis heims

Stormi dóttir Kylie Jenner er eitt frægasta barn í heimi.
Stormi dóttir Kylie Jenner er eitt frægasta barn í heimi. skjáskot/Instagram

Hin eins árs gamla Stormi Webster er líklega eitt frægasta eins árs gamla barn í heimi. Líf hennar snýst um að læra og leika eins og líf flestra á hennar aldri en nýlega birti móðir hennar, Kylie Jenner, mynd af herbergi hennar. Nóg af dóti og bókum er að finna í herberginu. 

Í fínni hillu er klassískum bókum raðað upp á punkt enda líklegt að sumar þeirra eins og ævintýri Friðþjófs forvitna séu aðeins of þungar fyrir lítið eins árs gamalt kríli. Smábarnabækurnar eru neðstar í hillunni og er líklegt að Stormi haldi upp á þær bækur þessa stundina. 

Einnig má sjá stóra mjúka kubba sem eru stundum til á leikskólum. Með þeim má ekki bara byggja heldur búa til skemmtilegar brautir fyrir litla krakka. 

Það er vel raðað í leikherbergi Stormi.
Það er vel raðað í leikherbergi Stormi. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert