Fermdist á Ísafirði 2004

Nína Guðrún Geirsdóttir blaðamaður skrifar um fermingardaginn sinn.
Nína Guðrún Geirsdóttir blaðamaður skrifar um fermingardaginn sinn.

Nína Guðrún Geirsdóttir blaðamaður fermdist í Ísafjarðarkirkju árið 2004. Hún segir að samfélagið hafi breyst mikið síðan hún fermdist.

Fermingin er dagurinn sem markar ákveðin kaflaskil í lífi ungmenna. Þegar tekin eru skref úr bómull barnæskunnar og stigið er varlega yfir í unglingastigið, diskótekin, fullorðinna manna tölu. Undirrituð man vel eftir sinni fermingu í Ísafjarðarkirkju árið 2004. Þetta var fyrsta veislan sem ég skipulagði og ég setti allt upp í excel-skjal í heimilistölvunni. Gerði gestalista, fann þemalit (appelsínugulan – sem ég ótrúlegt en satt þoli ekki í dag) og fiðrildaskreytingar. Ég fékk fullt af fínum gjöfum en það sem stendur upp úr í dag er gleðin í loftinu og sólin sem skein úti, fólkið sem kom.

Samfélagið hefur breyst á 15 árum, hvað þá á undanförnum 100 árum. Rithöfundurinn Jakobína Sigurðardóttir skrifaði um fermingu sína í æviminningum sínum, „Í barndómi, en þá var fermingin og undirbúningur hennar stórviðburður í lífi manns og mikið lagt í andlegan og kristilegan undirbúning fyrir hana. Það var ekki síður eftirvæntingin og/eða kvíðinn fyrir því sem var handan við ferminguna sem spilaði þar stórt hlutverk. Á þessum tíma var vinnualdur oftar en ekki miðaður við fermingu. Að komast í fullorðinna manna tölu hafði því raunverulega merkingu á þeim árum. Síðan þá höfum við haldið í þennan hugsunarhátt, litið er á fermingu sem ákveðinn vendipunkt þó að hún boði ekki jafn miklar breytingar og áður.

Hvort sem ætlunin er að fermast borgaralega eða í kirkju er hefðin að halda veislu, gjafir eru gefnar, fólkið í kringum þig safnast saman undir einu þaki og pabbi þinn heldur vandræðalega ræðu. Þetta er allt ákveðin prófraun fyrir óharðnaða unglinga. Í raun fallegt framhald á skírninni eða nafnaveislunni, þar sem hópur fólks safnast saman í kringum barnið og fagnar veru þess í heiminum. Tekið er skref yfir ósýnilegan þröskuld og barnið fullvisst um að allt verður í lagi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert