Svona forðastu vandræðalega fermingarveislu

Agnes Ósk Sigmundsdóttir.
Agnes Ósk Sigmundsdóttir.

Agnes Ósk segir að margir séu á því að fermingarveislur séu neikvæð upplifun. „Ég hef heyrt slíkar veislur sem dæmi um hve vandræðalegt „small talk“ getur verið. Þá er gott að hafa í huga að sýna viðmælanda sínum áhuga fremur en að draga stöðugt athygli að sjálfum sér. Flestum þykir gaman að hitta fólk sem spyr spurninga og hlustar.“

Hvað mælir þú með að foreldrar geri fyrir börnin sín fyrir fermingardaginn?

„Hjálpi þeim að undirbúa og bjóða gesti velkomna. Svo er líka mikilvægt að fermingarbarnið fái að njóta sín þennan dag. Flest börn upplifa hann sem stóra stund og ef foreldrar geta haft gleðina og léttleikann að leiðarljósi þá verður fermingin að góðum degi og fallegri minningu.“

Hefur þú fermt?

„Ég fermdi elsta drenginn minn sumardaginn fyrsta árið 2016. Geri ráð fyrir að ferma yngri strákana mína árin 2021 og 2022.“

Hvernig var það?

„Það kom mér á óvart hve ótrúlega skemmtilegt ferli fermingin er. Allt frá því að mæta í sunnudagsmessurnar, ræða við strákinn minn um stóru spurningar lífsins, velja litaþema, veislusal og baka stríðsterturnar. Dagurinn sjálfur var mikil hátíð þar sem fermingardrengurinn naut sín og gestirnir voru brosmildir.“

Hvernig þjálfun getur

maður fengið í samræðutækni?

„Á námskeiðum hjá Dale Carnegie er samræðutækni þjálfuð. Enda eru góðar samræður dýrmæt leið til að kynnast fólki, styrkja samningastöðu sína, efla sjálfstraust og koma hugmyndum sínum til skila.

Ein leið sem hægt er að fara til að forðast óþægilegar þagnir er að spyrja fólk út í áhugamál þess, hugðarefni, fjölskylduhagi og vinnumál. Kúnstin er að gera það á smekklegan hátt þannig að það virki ekki sem þriðju gráðu yfirheyrsla. Fermingarveislur setja samræður í annað samhengi en t.d. á viðburðum tengdum vinnu.“

Hvaða námskeið eruð þið með fyrir börn á fermingaraldri?

„Dale Carnegie-námskeið fyrir ungt fólk eru aldursskipt. Þar eru 10-12 ára börn saman, 13-15 ára unglingar saman í hópi, framhaldsskólaaldurinn

(16-19 ára) saman og 20-25 ára eru saman í hópi.

Oft koma krakkar til okkar á námskeið einmitt til þess að efla sig í tjáningu og bæta viðhorfið fyrir ferminguna. Jafnframt koma sumir til okkar eftir að hafa fengið Dale Carnegie-námskeið í fermingargjöf.“

Kanntu góða leiki eða atriði til að gera fermingar skemmtilegar?

„Fólk á að vera óhrætt við að fá gestina til að blanda geði hver við annan. Ein leið er að skipta upp í lið til að svara spurningum um fermingarbarnið.“

Hvað með mannasiði

í fermingum?

„Það er gott að barnið heilsi öllum gestunum og kveðji þá þegar veislunni lýkur. Sem gestur ætti maður að bera virðingu fyrir gestgjöfunum og fermingarbarninu sem er í forgrunni. Mæta hreinn, snyrtilegur með bros á vör og sól í hjarta.“

Hvað ætti maður aldrei

að gera í fermingum?

„Persónulega myndi ég aldrei bjóða upp á veitingar sem fermingarbarnið má ekki sjálft neyta. Þegar áfengi er í boði getur það myndað óþægilega stemningu sem á að mínu mati ekki við.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert