Þórunn Antonía opnar sig á 22 viku

Þórunn Antonía ásamt Freyju dóttur sinni. Hún á von á …
Þórunn Antonía ásamt Freyju dóttur sinni. Hún á von á öðru barni og segir hlutina eins og þeir eru á meðgöngunni.

Það er magnað að fylgjast með söngkonunni Þórunni Antoníu ganga í gegnum aðra meðgöngu sína, þar sem hún deilir með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum hvernig það er raunverulega að ganga með barn. Hún er gengin 22 vikur. 

Þórunn er leiðandi á sínu sviði hér á landi en örfáar þekktar leikkonur hafa farið sömu leið og hún, m.a. leikkonan Amy Schumer svo einhver sé nefnd. 

Margar ungar konur verða hissa við fyrstu meðgöngu sína, hversu lítið þær vita um hvað sé í vændum. Kvikmyndir, bókmenntir og samfélagið mála ákveðna mynd af þeim tíma sem kona gengur með barn. Stundum verður raunveruleikinn langt frá þeim sögum. 

Börn hvetja alla, konur sem karla, að fylgjast með Þórunni tala um hlutina eins og þeir eru á hennar meðgöngu. Fylgjendur geta kosið hvort þeir vilji meira alvörutal hjá henni í Instagram-sögu merktri Real talk! Þar segir hún meðal annars að það sem konur þurfi á meðgöngunni sé skilyrðislaus ást og umhyggja. Hún segir fyrstu mánuði meðgöngunnar áskorun fyrir flestar konur m.a. þar sem sveiflur verða á skapgerð þeirra, lyktarnæmi meira og þar fram eftir götunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert