30 klst. fæðingin á Youtube

Youtube-stjarnan Sarah Steveneson lét taka upp fæðinguna sína.
Youtube-stjarnan Sarah Steveneson lét taka upp fæðinguna sína. Skjáskot/Youtube

Youtube-stjarnan Sarah Steveneson eignaðist sitt fyrsta barn í lok mars. Hún lét mynda fæðinguna sem tók 30 klukkutíma allt frá fyrstu samdráttum þangað til hún fékk son sinn í fangið. Hún er nú búin að setja saman 25 mínútna myndband á Youtube frá fæðingunni.

Ekki nóg með það að setja saman myndbandið þá gaf hún nákvæma skýrslu á Instagram og birti myndir með. Aðdáendur Stevenson sem er frá Ástralíu eru ánægðir með myndbandið og fær hún mikið hrós fyrir að sýna hvernig fæðing gengur fyrir sig. 

„Þetta er raunsæjasta og fallegasta fæðingarmyndband sem ég hef nokkurn tímann séð. Ég grét svo mikið. Glöð með að allt fór vel í lokin og barnið var heilbrigt,“ skrifaði einn aðdáandi á Youtube. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert