Gagnrýnd fyrir Gucci-skó dóttur sinnar

Kim Kardashian birti mynd af sér og dóttur sinni ásamt …
Kim Kardashian birti mynd af sér og dóttur sinni ásamt systur sinni, Kourtney Kardashian, og dóttur hennar. skjáskot/Instagram

Kourtney Kardashian er nú gagnrýnd fyrir uppeldisaðferðir sínar en henni þykir dóttir hennar ganga í helst til of dýrum skóm í skólanum. Elsta Kardashian-systirin fékk gusuna yfir sig eftir að Kim Kardashian West birti mynd af þeim með dætur sínar North og Penelope fyrir framan skóla þeirra eftir vorfrí á mánudaginn. 

Penelope sem verður sjö ára í sumar var klædd í skólabúning rétt eins og frænka hennar North West en í stað þess að vera í sokkabuxum og Converse-skóm eins og frænkan var hún berleggja í mokkasínum með sandalabandi frá Gucci. 

Erlendir miðlar hafa greint frá harkalegum viðbrögðum fólks en mokkasínurnar er hægt að kaupa á vef Harrods á 282 evrur eða um 39 þúsund íslenskar krónur og koma upp í stærð 33. 

View this post on Instagram

Spring Break is over 😭📖📚✏️

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on Apr 8, 2019 at 9:15am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert