„Rís fönix beint upp úr rassinum á þér?“

Ben Affleck hefur verið vinsæll leikari en lífið hefur ekki …
Ben Affleck hefur verið vinsæll leikari en lífið hefur ekki verið einfalt hjá stórstjörnunni til þessa. mbl.is/AFP

Ben Affleck og Jennifer Garner eiga þrú börn saman. Þau Violet 13 ára, Seraphina 10 ára og Samuel 7 ára. Affleck og Garner voru gift í tíu ár en sóttu um skilnað árið 2015 sem gekk í gegn árið 2018. Þau gera sitt besta að ala börnin sín upp í sátt og heiðrleika að sögn Ben Affleck í spjallþætti Ellen DeGeneres nýverið þar sem hún gerir meðal annars góðlátlegt grín af fuglinum fönix sem er húðflúraður á bakinu á leikaranum. 

Það hefur ýmislegt gengið á í lífi Afflect. Hann hefur verið að kljást við alkahólmsma um langt skeið. Fór fyrst í meðferð á tíunda áratugnum en hefur upplifað tvö föll og farið í fleiri meðferðir á þessum tíma. 

Affleck segir þau Garner góða foreldra fyrir Violet sem er þrettán ára, Seraphina sem er tíu ára og Samuel sem er sjö ára. 

Í viðtalinu hrósar Affleck Garner fyrir að vera góð móðir en segir að þau séu ekki alltaf sammála þegar kemur að uppeldi barnanna. Hún sé mun strangari en hann, sér í lagi þegar kemur að skjátíma barnanna og tölvunotkun. 

Þau eru bæði komin í ný ástarsambönd. Affleck er á villtu tímabili að mati margra þó hann sé ekki að drekka. Hann hefur nýverið fengið sér stórt húðflúr á bakið svo dæmi séu tekin. 

Ellen DeGeneres spyr hann hvað húðflúrið þýði og Alleck svarar því til að það sé fuglinn fönix. „Sem rís svona beint upp úr rassinum á þér? Það er ákveðin skuldbinding.“

View this post on Instagram

@BenAffleck has a big back tattoo. I’m not sure if you’ve heard. He tells me about it tomorrow.

A post shared by Ellen (@theellenshow) on Mar 13, 2019 at 7:24pm PDT


 

Ben Affleck and Jennifer Garner árið 2014 ári áður en …
Ben Affleck and Jennifer Garner árið 2014 ári áður en þau sóttu um skilnað. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert