Feðgastund á sunnudögum

Thor Aspelund og Ari Karl Aspelund njóta samverunnar á sunnudögum …
Thor Aspelund og Ari Karl Aspelund njóta samverunnar á sunnudögum eftir messu. mbl.is/Hari

Ari Karl Aspelund fermist í Dómkirkjunni á þessu ári. Hann er sonur þeirra Thors Aspelund og Örnu Guðmundsdóttur. Feðgarnir hafa rölt saman í kirkju og gert það að venju að koma við í uppáhaldsbakaríinu á leiðinni heim. 

Fjölskyldan hans Ara er nýflutt í Vesturbæinn. Þeir feðgar njóta því þess að geta gengið í bæinn og heimsótt verslanir eins og Vínberið og Kokku og síðan að fara á kaffihús saman. Thor er prófessor við Háskóla Íslands við Miðstöð í lýðheilsuvísindum og Ari er nemandi í 8. bekk í Hagaskóla.

Allir í góðu skapi

Hvernig hefur fermingarfræðslan verið?

„Hún er búin að vera skemmtileg og fræðandi. Þau Elínborg og Sveinn, prestar kirkjunnar, og Siggi sem guðfræðinemi voru alltaf í góðu skapi í tímum. Mér fannst gaman að hitta hina krakkana úr Hagaskóla í fermingarfræðslunni. Svo var ferðin í Vatnaskóg mjög skemmtileg,“ segir Ari.

Hafa sunnudagar verið ánægjulegir ykkur feðgum?

„Já, aldeilis og eiginlega tvöfalt það. Okkur finnst notalegt að geta gengið í miðbæinn í messu. Það er svo rólegt að sitja í kirkjunni. Síðan er gaman að spjalla um daginn og veginn og predikunina á leiðinni heim. Síðan komum við alltaf við í okkar uppáhaldsbakaríi, Brikk, og fáum okkur eitthvað gott með kaffinu. Það er frábært að koma heim alveg slakur í góðan kaffitíma,“ segir Thor.

Á leiðinni á Brikk að sækja eitthvað gott með kaffinu.
Á leiðinni á Brikk að sækja eitthvað gott með kaffinu. mbl.is/Hari

Tónlistin í uppáhaldi

Ari tekur undir með pabba sínum og segir þessar stundir góðar. „Mér finnst ágætt að fara í messu með pabba. Það var alltaf svo huggulegt að hlusta á tónlistina og prestinn predika. Uppáhaldið mitt við messuna er tónlistin.“

Hvernig eruð þið að plana að hafa ferminguna?

„Við ætlum að hafa veislu heima með nánustu ættingjum. Við erum búin að panta mat. Ég var ekki í miklu stuði til að panta stóran sal og hafa mjög langa fermingarveislu. Ég hugsaði með mér að mig langaði bara til að hafa fámenna veislu,“ segir Ari og bætir við að hann hlakki mest til veislunnar og að hitta fjölskylduna og ættingja.

Fara ósjálfrátt í að breyta og bæta

Er undirbúningurinn mikil vinna fyrir ykkur foreldrana?

„Ekki beinlínis vinna heldur eitthvað skemmtilegt að hlakka til. Maður fer ósjálfrátt að gera fínt og breyta og bæta heimilið og það er gaman,“ segir Thor.

Ari segir að fermingarfræðslan hafi verið lærdómsrík fyrir hann. Hann viti nú meira um Jesú og sögurnar í Biblíunni. „Það er nokkuð áhugavert að mínu mati.“

Trúir þú á Guð, Ari?

„Ég veit það ekki nefnilega. Það er mjög flókið að hugsa um þetta allt. En ég vil vita meira og læra. Ég vil fylgja hefðum sem tengjast okkar trú, t.d. halda jól og páska.“

Ari hrífst af tónlist enda er hann að læra á trommur. „Ég er reyndar að fara að breyta og ætla að nota rafmagnstrommur. Ég er ekki mikið í íþróttum en finnst ágætt að fylgjast með fótboltaleikjum.“

Það eru fjölmörg tækifæri sem foreldrar fá að njóta stunda …
Það eru fjölmörg tækifæri sem foreldrar fá að njóta stunda með börnum sínum í tengslum við fermingar. mbl.is/Hari
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert