Fyrrverandi og núverandi góðar vinkonur

Derek Blashberg, Gwyneth Paltrow og Dakoda Johnson á góðri stundu …
Derek Blashberg, Gwyneth Paltrow og Dakoda Johnson á góðri stundu saman í afmæli Blashberg nýverið.

Ef það eru einhverjar sem kunna að gera hlutina faglega að mati ELLE magazine eru það þær Gwyneth Paltrow og Dakota Johnson. Þær eru góðar vinkonur og hafa verið það um tíma. Paltrow er fyrrverandi eiginkona Chris Martin söngvara í Coldplay og Johnson er núverandi kærasta hans. 

Samkvæmt vefmiðli ELLE eru þær miklar vinkonur.

Martin og Johnson virðast vera heilluð af hvort öðru og hafa hug á að taka sambandið sitt lengra. Paltrow gæti ekki verið ánægðari með val hans á kærustu ef marka má nýjustu heimildir. 

Málefni er varðar fósturforeldra eru vinsæl um þessar mundir, enda er um helmingur hjónabanda að enda með skilnaði í dag. 

Þótt ekki séu liðin nema þrjú ár frá skilnaði þeirra Paltrow og Martin virðast samskiptin vera til fyrirmyndar. Báðir aðilar setja börnin sín í fyrsta sæti og svo virðist sem þau vilji hvort öðru vel þegar kemur að nýjum samböndum. 

Samkvæmt ELLE hélt fjölmiðlamaðurinn Derek Blashberg upp á afmæli sitt nýverið þar sem þær Paltrow og Johnson áttu skemmtilegt kvöld saman. Það er áhugavert að sjá hlutina þegar þeir eru vel gerðir að mati fjölmiðla í dag. 

View this post on Instagram

Consciously throupling

A post shared by Derek Blasberg (@derekblasberg) on Apr 23, 2019 at 11:55am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert