„Það er engin jörð B“

Maddy Fernands er ungur leiðtogi sem berst fyrir því að …
Maddy Fernands er ungur leiðtogi sem berst fyrir því að umhverfismálum verði sinnt betur á sviði stjórnmála. Hún hvetur ungt fólk um víða veröld að leggja málefninu lið.

Ungt fólk út um víða veröld heldur áfram að láta til sín taka þegar kemur að umhverfismálum og móður jörð. Hinn árlegi jarðardagur var haldinn hátíðlegur víða um heiminn 22. apríl síðastliðinn. Áhugavert efni frá m.a. ungu fólki kom fram á þessum degi á Instagram undir myllumerkinu #earthday2019.

Hörðustu umhverfissinnarnir eru hins vegar á því að dagur jarðarinnar sé í raun og veru á hverjum degi og pósta undir myllumerkinu #earthdayeveryday.

Á Instagram-síðu Parents nýverið var fjallað um Maddy Fernands sem er ungur leiðtogi á sviði umhverfismála. Fernands er 16 ára að aldri frá Edina Minnesota og starfar sem fjölmiðlafulltrúi fyrir US Youth Climate Strike.

Hún er á því að varðveita skuli jörðina eins vel og möguleiki er á, þar sem við eigum bara eina jörð. Hún hvetur ungmenni út um víða veröld að taka þátt í næstu mótmælum í umhverfismálum 3. maí næstkomandi. Hún segir stuðning í verki sýndan með því að mæta á staðina þar sem mótmælt verður og hver og einn ætti að taka fimm vini sína með sér. 

Ungt fólk í Bandaríkjunum er að undirbúa umræðuþing með forsetaframbjóðendum til forsetakosninganna árið 2020 þar sem málefni jarðarinnar og framtíð ungs fólks verða rædd. Hún bendir á myllumerkið #climatedebate þar sem hægt er að fylgjast með þessari áskorun betur á Instagram. 

Samstaða ungs fólks á þessu sviði er að margra mati til fyrirmyndar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert