Knúsar unglinginn á rauða dreglinum

Leikkonan Gwyneth Paltrow knúsar son sinn Moses á rauða dreglinum …
Leikkonan Gwyneth Paltrow knúsar son sinn Moses á rauða dreglinum nýverið.

Gwyneth Paltrow hefur ekki mörg tilefni til að taka Moses 13 ára son sinn með sér á rauða dregilinn. Hins vegar gafst gott tækifæri fyrir þau að fara saman þegar kvikmyndin Avengers: Endgame var frumsýnd á dögunum. 

Margar myndir sem sýndar eru í kvikmyndahúsum eru hvorki gerðar fyrir börn né unglinga. Nýja Avengers kvikmyndin er leyft börnum 13 ára og eldri og því gat Moses mætt og haft gaman af. 

Paltrow á son sinn Moses með söngvaranum Chris Martin. Þau eru greinilega náin og fékk hann einlægt knús frá mömmu sinni á rauða dreglinum eins og myndin hér að ofan sýnir. Paltrow hefur sjaldan eða aldrei litið betur út en einmitt núna. Hún er hamingjusöm í nýju hjónabandi og heldur góð tengsl við fyrrverandi maka sinn, Martin. 

Fjölskyldan fékk sér hund á dögunum. Þau fengu hundinn í hundaathvarfi fyrir heimilislausa hunda sem þykir vinsælt um þessar mundir víða. 

View this post on Instagram

Thank you @humanesocietysb for connecting us to the newest member of our family #rescuedog

A post shared by Gwyneth Paltrow (@gwynethpaltrow) on Apr 21, 2019 at 7:49pm PDT

Gwyneth Paltrow glæsileg að vanda á frumsýningu Avengers: Endgame á …
Gwyneth Paltrow glæsileg að vanda á frumsýningu Avengers: Endgame á dögunum. VALERIE MACON
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert