Skilin en ala börnin upp í vinsemd

Scott Disick og Kourtney Kardashian eru góðir vinir í dag. …
Scott Disick og Kourtney Kardashian eru góðir vinir í dag. Þau eru skilin að skiptum en ala börnin upp í mikilli vinsemd og virðingu.

Kourtney Kardashian og Scott Disick hafa verið mikið á milli tannanna á fólki að undanförnu. Eftir skilnað sinn hafa þau hins vegar náð að ala börnin sín upp saman, sem er að margra mati til fyrirmyndar. Þau segja það hafa tekið töluvert á og að baki samvinnu þeirra sé fjöldinn allur af ráðgjafatímum og úrvinnslu. 

Þetta kemur fram í nýlegu viðtali á vefsíðunni Poosh sem Kourtney Kardashian ritstýrir. 

Í viðtalinu kemur meðal annars fram að þau vilji setja athyglina á hvernig er að vinna saman í því að ala upp börn þrátt fyrir skilnað. 

„Mér finnst margir líta á okkur sem fyrirmyndir að þessu leyti en hins vegar hef ég líka heyrt að fólki finnst við skrítin. Að vera svona náin eftir skilnað og miklir vinir fyrir börnin,“ segir Kardashian og Disick tekur við. 

„Mér er alveg sama hvað fólki finnst um okkur svo framarlega sem okkur líður vel. Ég vil frekar að fólki finnist við skrítin og við séum sátt í stað þess að við værum að þóknast öðrum og ekki vinir. Í dag erum við að ala börnin okkar upp eins og við hefðum gert ef við værum enn þá saman. Í raun skil ég ekki hvernig er hægt að ala upp þrjú börn og tala ekki saman. Við ræðum málin og finnum út úr hlutunum saman.“

Kardashian segist vera sammála enda enginn sem þekkir börnin þeirra betur en foreldrarnir.

Í viðtalinu má sjá einstakt traust og velvild þeirra á milli. Þau segja að staðurinn sem þau eru á komi ekki af sjálfu sér. 

„Við hugsum hlutina út frá börnunum okkar. Ég veit ekki hvernig mér hefði liðið ef foreldrar mínir hefðu skilið. Þú upplifðir slíkt og það tekur alltaf á,“ segir Disick. 

Þau eru sammála því að til þess að komast á þennan stað þurfi aðstoð frá færum ráðgjöfum. Fólk þarf að vera tilbúið að vinna sig í gegnum vandamálin þegar þau koma upp og að setja fókusinn á börnin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert