Ef ekki magabolir á meðgöngunni hvenær þá?

Söngkonan Þórunn Antonía ásamt Dóru Júliu sem er einn heitasti …
Söngkonan Þórunn Antonía ásamt Dóru Júliu sem er einn heitasti dj dagsins í dag.

Söngkonan Þórunn Antonía er brautryðjandi á svo mörgum sviðum. Nýverið birti hún mynd af sér á samfélagsmiðlum þar sem hún sýnir beran magann. Margir eru á því að hún sé að koma af stað nýrri tísku þar sem óléttar konur munu nú feta í fótspor hennar í sumar. 

Það er ekkert fallegra en ófrískar konur, en stundum getur verið vandasamt að finna fallegan klæðilegan fatnað að vera í á meðgöngunni. 

Þórunn Antonía virðist ekki vera í neinum vandræðum með þetta og segir að henni finnist minna mál að klæða sig á miðri meðgöngu en í upphafi hennar. 

„Líkaminn breytist strax í upphafi meðgöngunnar en fókusinn kemur ekki á kúluna fyrr en um miðja meðgönguna. Maður á bara að fagna öllum hlutum meðgöngunnar.

Það er svo magnaðir hlutir í gangi á meðgöngunni. Maður er að skapa heila manneskju inn í sér. Á ákveðnu tímabili fór ég að velta fyrir mér í hverju ég ætti að vera. Ég á fullt af allskonar magabolum og fallegum fatnaði. Ég fór bara að prófa mig áfram og ef maður er ekki í magabolum á meðgöngunni hvenær þá?“ spyr Þórunn Antonía. 

Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að fagna öllum breytingum og að segja við líkamann á meðgöngunni að allar breytingar séu velkomnar. Þannig finnið barnið hversu velkomið það er inn í heiminn.

Þórunn Antonía heldur í stílinn þrátt fyrir að vera ófrísk. …
Þórunn Antonía heldur í stílinn þrátt fyrir að vera ófrísk. Hún birti þessa mynd af sér nýverið á samfélagsmiðlum þar sem hún er með Dóru Júlíu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert