„Síðan þá hefur hún verið stelpa“

Charlize Theron á tvö börn og er annað þeirra trans-stúlka.
Charlize Theron á tvö börn og er annað þeirra trans-stúlka. mbl.is/AFP

Leikkkonan Charlize Theron segist vera að ala upp tvær fallegar stelpur sem séu stoltar af afrískum uppruna sínum. Önnur dætra hennar, fæddist drengur en greindi henni frá því aðeins þriggja ára að hann væri í raun og veru stelpa. „Síðan þá hefur hún verið stelpa,“ segir Theron. Þetta kemur m.a. fram á vef Daily Mail

Myndir hafa birst af leikkonunni með börnin sín tvö, sem bæði eru ættleidd og eru stúlkurnar þá oft í kjólum.

Theron segir hlutverk sitt sem móður vera að elska börnin sín eins og þau eru. Hún segir uppeldið að miklu leiti koma til vegna þess sem hún hafi verið alin upp við sjálf. Þar sem margt var ósagt í umhverfinu og logið til um margt. 

Þeir sem þekkja til sögu Theron muna áfallið sem fjölskyldan fór í gegnum þegar móðir hennar Gerda varð föður hennar að bana. Atvikið var flokkað sem sjálfsvörn. „Mér var kennt að segja sannleikan í æsku og gef ég það áfram til barna minna,“ sagði Theron.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert