Eiga von á þriðja barninu

Hjónin voru gullfalleg á frumsýningunni.
Hjónin voru gullfalleg á frumsýningunni. AFP

Leikarahjónin Blake Lively og Ryan Reynolds eiga von á sínu þriðja barni saman. Þau stálu senunni á frumsýningu teiknimyndarinnar Pokemon Detective Pikachu í gærkvöldi þegar þau tilkynntu um óléttuna. Fyrir eiga þau tvö börn, dæturnar James 4 ára og Inez 2 ára. Lively og Reynolds búa ekki í Los Angeles eins og margir leikarar heldur búa þau í Bedford í New York-ríki.

Lively geislaði eins og sólin í einstaklega fallegum gulum kjól.
Lively geislaði eins og sólin í einstaklega fallegum gulum kjól. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert