Samkvæmt The Indipendent virðast margir foreldrar eiga uppáhaldsbarn ef marka má niðurstöður rannsókna um efnið.
Margir þekkja orðatiltækið um týnda miðjubarnið og segjast þeir sem fæddir eru í miðjunni í systkinahópi sínum hafa fundið fyrir því að fá minni athygli en eldra og yngra systkin sitt.
Einn fjórði foreldra virðist samkvæmt könnuninni sem fjallað er um í greininni eiga uppáhaldsbarn. Af þeim foreldrum var yfir helmingur sem valdi yngsta barnið sem sitt uppháhalds. 26% foreldra sögðu elsta barnið sitt uppáhalds.
Aðrir hlutir virðast einnig skipta máli. 41% foreldra sögðu að barnið sem líktist þeim mest væri í uppáhaldi að sama skapi sagði yfir helmingur þeirra sem áttu sér uppáhaldsbarn að það væri barnið sem væri fyndnast.
Flestir foreldrar í rannsókninni sögðu rangt að velja eitt barn sem uppáhalds.