Pink heldur hlutunum saman með ráðgjöf

Söngkonan Pink með börnum sínum tveimur.
Söngkonan Pink með börnum sínum tveimur.

Pink er mikil fjölskyldumanneskja en segir að það sé síður en svo auðvelt að setja saman fjölskyldu. Hún þakkar stuðningi sem þau hjónin hafa fengið í gegnum sambandið að þau séu enn þá saman. 

Á vefsíðu Parents er fjallað um málið. Þar kemur fram togstreita hennar í garð eigin líkama. Hún hefur farið í gegnum þá erfiðu lífsreynslu að missa fóstur og hefur þá kennt líkama sínum um. 

„Ég trúi á að horfast í augu við hlutina og að skoða það sem liggur undir niðri. Það er ýmislegt sem maður ekki sér sjálfur en sem dæmi ráðgjafi kemur auga á. Svona vinna er aldrei einföld en hún kemur manni á betri stað.“

View this post on Instagram

Baby boy, you’re too much cuteness in one little body #mamasinging #concertgrower #gypsyfamily #tourlife

A post shared by P!NK (@pink) on Mar 4, 2019 at 1:22pm PST

Eiginmaður Pink er Carey Hart. Hún segir að hvorugt þeirra sé með heilbrigðar fyrirmyndir þegar kemur að hjónabandinu. Því hafa þau alla tíð þurft á stuðningi og aðstoð að halda. 

Pink og Hart hafa verið gift í 13 ár. Þau eiga tvö börn saman. Dótturina Willow Sage og soninn Jameson Moon. 

Hún tekur sér tíma reglulega þar sem hún lokar á allt utanaðkomandi og ver gæðastundum með fjölskyldunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert