Læknir missti nýbura á fæðingardeildinni

Ýmislegt getur farið úrskeiðis á fæðingardeildinni.
Ýmislegt getur farið úrskeiðis á fæðingardeildinni. mbl.is/AFP

Myndband frá fæðingu á Facebook sem tvíburamóðir setti á netið hefur farið á flug á netinu eftir að hún bað fólk um að deila því. Í því má sjá hvernig læknir missir annan tvíburann en tvíburarnir fæddust fyrir tímann. Segist hún vilja deila myndbandinu til þess að koma í veg fyrir að þetta sama komi fyrir önnur börn á spítalanum. 

Tvíburarnir fæddust í febrúar en seinna kom í ljós að heilablæðing hafði átt sér stað hjá öðrum tvíburanum og segist móðirin ekki vita hvort það sé vegna þess hversu létt barnið var við fæðingu eða vegna fallsins á fæðingardeildinni. Rannsóknin var gerð þegar tvíburarnir voru fimm daga gamlir en segist móðirin hvorki hafa fengið niðurstöðurnar né verið upplýst um framkvæmd rannsóknarinnar.  

Hér má sjá myndbandið en varað er við því fyrir viðkvæma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert