Vill eignast annað barn á næsta ári

Verða þau fjögur á næsta ári?
Verða þau fjögur á næsta ári? skjáskot/Instagram

Raunveruleikaþáttastjarnan Kylie Jenner segist vilja eignast annað barn á næsta ári. Hún á eina dóttur fyrir, Stormi, með rapparanum Travis Scott. Stormi varð eins árs í febrúar síðastliðnum og segir Jenner að hún hafi breytt lífi hennar. Samkvæmt heimildarmanni E!Online talar Jenner mikið um barneignir. 

Jenner tók sér pásu frá sviðsljósinu á meðan hún var ólétt og tilkynnti um fæðingu dóttur sinnar nokkrum dögum eftir fæðinguna með myndbandi á Instagram sem vakti mikla athygli.

Kærasti hennar og barnsfaðir Travis Scott átti afmæli á dögunum og skrifaði Jenner í afmæliskveðjunni til hans á Instagram að hún vildi fara að búa til annað barn með honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert