Skrá nöfn barna sinna sem vörumerki við fæðingu

North West, Saint West, Chicago West og Psalm West eiga …
North West, Saint West, Chicago West og Psalm West eiga öll skráð vörumerki. skjáskot

Raunveruleikaþáttastjarnan Kim Kardashian West og fjöllistamaðurinn Kanye West hafa skráð nöfn barna sinna sem vörumerki við fæðingu að því er slúðurmiðillinn TMZ greinir frá. 

West-hjónin eignuðust á dögunum fjórða barn sitt sem fékk nafnið Psalm West. Nafnið var skráð sem vörumerki stuttu eftir að drengurinn fékk nafnið. 

Kim Kardashian er ekki sú eina í fjölskyldunni sem hefur farið þá leið að skrá nöfn barna sinna sem vörumerki, en nöfn dætra Kylie Jenner og Khloé Kardashian eru einnig skráð vörumerki.

Nöfnin eru skráð sem vörumerki á fjölbreyttum sviðum, allt frá skartgripum og snyrtivörum yfir í lyklakippur og bækur. 

Þær systur hafa þó ekki gefið út neinar vörur í nafni barna sinna, en talið er að þær séu að búa í haginn fyrir börnin sín í framtíðinni, vilji þau feta í fótspor fjölskyldunnar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert