Þetta kalla tvíburar Madonnu mömmu sína

Madonna er tónlistarkona og sex barna móðir.
Madonna er tónlistarkona og sex barna móðir. mbl.is/AFP

Madonna er ekki bara ein frægasta söngkona í heimi hún er einnig einstæð sex barna móðir. Börnin hennar takast mismunandi á við frægðina eins og hún greindi frá í útvarpsþætti á dögum að því fram kemur á vef People

Madonna segir að eldri börnum hennar sé nákvæmlega sama um frægð móður sinnar á meðan þeim yngri finnist hún fyndin. „Mamma, af hverju eru allir að spyrja hvort Madonna sé mamma okkar?“ sagði Madonna að sex ára gömlu tvíburastelpurnar hennar, Estere og Stella, hafi spurt sig daginn sem viðtalið var tekið. „Nei, Madame X er móðir okkar,“ sögðust stelpurnar svara þegar þær væru spurðar um nafn móður sinnar. 

Madame X er nýjasta plata Madonnu og svo virðist sem sex ára gömlu dætur hennar séu duglegar að auglýsa plötuna fyrir móður sína. 

Hér fyrir neðan má sjá Madonnu með öll sex börn sín en hún býr í Portúgal með börnum sínum. Madonna gekk sjálf með þau Lour­des sem fædd er árið 1996 og son­inn Rocco sem hún eignaðist með fyrr­ver­andi eig­in­manni sín­um Guy Ritchie árið 2000. Í fe­brú­ar árið 2017 ætt­leiddi hún fjög­urra ára gaml­ar tví­bura­syst­urnar frá Mala­ví. Áður hafði hún ætt­leitt Dav­id árið 2006 en það tók nokk­ur ár og dóms­mál að fá loks­ins ætt­leiðingu dótt­ur­inn­ar Mercy í gegn árið 2009. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert