Borgaði fyrir ófá þungunarrof

Khloé Kardashian og Lamar Odom.
Khloé Kardashian og Lamar Odom. mbl.is/AFP

Körfuboltastjarnan Lamar Odom eignaðist aldrei barn með Khloé Kardashian en hann hefur þó barnað fjölda kvenna eins og hann segir frá í nýrri sjálfævisögu sinni. Börnin voru óvelkomin í heiminn hjá kynlífsfíklinum og segir hann hreinskilnislega frá í bókinni að hann hafi borgað fyrir ófá þungunarrof að því fram kemur á vef UsWeekly

„Ég svaf hjá fimm eða sex stelpum á viku, en eymdin kom yfir mig þá einu nótt sem fór einn heim. Ég þurfti konur til að fá útrás... sem flótta. En þessu fylgdu vandamál,“ segir Odom í bókinni. „Ég stundaði oftast kynlíf án getnaðarvarna og ég hef borgað fyrir mörg þungunarrof í gegnum árin.“

Odom segir að allt sem hann hafi gert hafi verið löglegt þó það þýði ekki endilega að hann sé stoltur af gjörðum sínum. 

Odom eignaðist þrjú börn með fyrstu eiginkonu sinni, Liza Morales. Hann gekk seinna í hjónaband með raunverleikastjörnunni Khloé Kardashian og þrátt fyrir að hafa fengið hjálp frá læknum eignuðust þau aldrei barn saman. 

Lamar Odom.
Lamar Odom. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert