Nicole Kidman braut eigin reglu

Samrýndu hjónin Nicole Kidman og Keith Urban eiga saman tvær …
Samrýndu hjónin Nicole Kidman og Keith Urban eiga saman tvær dætur. mbl.is/AFP

Leikkonan og móðirin Nicole Kidman heldur einkalífi sínu fyrir út af fyrir sig og er ekki ein af þeim stjörnum sem er sífellt með beina útsendingu frá heimilislífinu á samfélagsmiðlum. Hún braut þó óskrifaða reglu sína þegar hún birti myndir af dætrum sínum á Instagram í vikunni. 

„Ég er ekkert án ástar fjölskyldu minnar,“ skrifaði Kidman og birti mynd af sér faðma dæturnar Sunday sem er tíu ára og Faith sem er átta ára. Dæturnar á hún með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Keith Urban. 

Kidman fór varlega þegar hún birti mynd af sér með dætrum sínum en dæturnar snúa baki í myndavélina svo ekki sést í andlit þeirra. Myndin af Kidman með dætrum sínum var tekin á miðvikudaginn, sama dag og hún mætti á frumsýningu sjónvarpsþáttanna Big Little Lies ásamt eiginmanni sínum. 

Kidman átti erfitt með að eignast börn og á tvö eldri ættleidd börn með fyrrverandi eiginmanni sínum Tom Cruise. Yngri dóttir þeirra Urbans, Faith, kom í heiminn með hjálp stagöngumóður. 

View this post on Instagram

I am nothing without the love of my family ❤️

A post shared by Nicole Kidman (@nicolekidman) on May 29, 2019 at 2:51pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert