Sorgmædd að verða einstæð móðir

Ciara ásamt núverandi eiginmanni sínum Russell Wilson.
Ciara ásamt núverandi eiginmanni sínum Russell Wilson. PASCAL LE SEGRETAIN

Tónlistarkonan Ciara segir að hún hafi verið mjög sorgmædd yfir að verða einstæð móðir eftir að hún skildi við fyrrverandi unnusta sinn og rapparann Future árið 2014. Ciara og Future eiga einn son saman. 

Ciara segir í viðtali við Jödu Pinkett Smith að foreldrar hennar hafi aldrei skilið og því fannst henni hræðilegt að sonur hennar myndi eiga framtíð þar sem foreldrar hans voru ekki saman. Ciara og Future skildu þegar sonur þeirra var aðeins nokkurra mánaða gamall.

Hún segir að sér hafi liðið eins og hún hafi brugðist syni sínum og grét löngum stundum yfir því. Hún var hrædd um að fólk myndi gagnrýna hana og að líf hennar væri búið. Hún segir þó að það hafi verið betra fyrir alla að þau hættu saman, en samband þeirra var ekki heilbrigt að hennar sögn.

Hún kynntist öðrum manni skömmu eftir, fótboltamanninum Russell Wilson. Þau hafa verið saman síðan sonur Ciöru og Future var aðeins 10 mánaða gamall, og eiga Wilson og Ciara eina dóttur saman. Þau giftu sig árið 2016. 

Ciara ásamt eiginmanni sínum, Russell Wilson, og syni sínum Future.
Ciara ásamt eiginmanni sínum, Russell Wilson, og syni sínum Future. Instagram/Ciara
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert