Archie er kominn með barnfóstru

Archie Harrison Mountbatten-Windsor er kominn með barnfóstru.
Archie Harrison Mountbatten-Windsor er kominn með barnfóstru. mbl.is/AFP

Það leikur ekki nokkur vafi á því að kóngafólkið í Bretlandi tekur sér tíma að velja barnfóstrur. Meg­h­an Markle, her­togaynj­an af Sus­sex, og Harry prins hafa sinnt Archie af mikilli kostgæfni fyrstu vikurnar í lífi hans. Nú hafa þau hins vegar fundið rétta aðilann til að gæta hans. Þetta kemur fram á vef Cosmopolitan.

Barnfóstran þurfti að skrifa undir ítarlegan samning þar sem engar fregnir mega berast út fyrir heimilið. Barnfóstrur í Bretlandi eru vel menntaðar og hluti af menntun þeirra sem gæta barna kóngafólksins er að læra að fara vel með leyndarmál þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert