Erfiðu hliðarnar á foreldrahlutverkinu

Það var margt sem kom Michelle Lin á óvart varðandi …
Það var margt sem kom Michelle Lin á óvart varðandi móðurhlutverkið. Pexels

Þegar Micheele Lin varð móðir bar það hana næstum ofurliði hvað raunveruleikinn var allt öðruvísi en hún bjóst við. „Það sagði mér enginn hvað það getur verið erfitt að gefa bjóst. Hvorki vinkonur mínar né bækurnar sem ég las á meðan ég var ólétt,“ sagði Lin í viðtali við Huffington Post. 

Lin lærði ekki að festa bleyju á standandi krakka.
Lin lærði ekki að festa bleyju á standandi krakka. Skjáskot/Instagram

„Annað sem ég átti ekki von á var hversu mikið börn hreyfa sig mikið á meðan maður skiptir á þeim. Ég var búin að æfa mig að skipta um bleyju á dúkku á foreldranámskeiði og var alls ekki undirbúin fyrir spriklandi ungabarn, og hvað þá eldra barn sem stendur upp í miðjum klíðum og reynir að labba á skiptiborðinu,“ segir Lin. 

Hún ákvað að tækla þetta með því að teikna skemmtilegar teikningar af öllu því sem kom henni á óvart og það sem henni þykir erfitt við foreldrahlutverkið. Afraksturinn er einstaklega skemmtileg Instagram-síða sem margir foreldrar tengja áreiðanlega við.



Það getur verið erfitt að laumast inn í svefnherbergi þegar …
Það getur verið erfitt að laumast inn í svefnherbergi þegar barnið er sofnað. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert