Vill fá boð í skírnina hjá Archie

Archie Harrison Mountbatten-Windsor verður skírður í sumar.
Archie Harrison Mountbatten-Windsor verður skírður í sumar. AFP

Thomas Markle yngri, bróðir hertogaynjunnar Meghan Markle, vill fá boð í skírnina hjá systursyni sínum Archie. Markle yngri bar upp bónina í viðtali við Express í gær og sagðist vona að skírnin gæti markað nýjan kafla hjá fjölskyldunni. 

Lítið hefur heyrst í fjölskyldu Meghan síðustu mánuði, en faðir hennar, systir og bróðir höfðu farið mikinn í viðtölum mánuðina eftir brúðkaup Meghan og Harry Bretaprins. 

Fjölskylduerjurnar hafa gert Meghan lífið leitt, en þau hafa farið ófögrum orðum um hertogaynjuna og eiginmann hennar í fjölmiðlum. 

Markle yngri sagðist í viðtalinu að hann væri ekki viss um hvort Meghan myndi bjóða honum en að hann vildi að sjálfsögðu vera viðstaddur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert