Tónlistarmaður eins og pabbinn?

Víkingur er fyrsta barn þeirra Unnsteins Manúels og Ágústu.
Víkingur er fyrsta barn þeirra Unnsteins Manúels og Ágústu.

Tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson og vöruhönnuðurinn Ágústa Sveinsdóttir eignuðust soninn Víking síðla sumars á síðasta ári. Fullt nafn barnsins er Víkingur Manuel Stefán Unnsteinsson. Hann þykir einstaklega líkur báðum foreldrum sínum og er ánægjulegt að fylgjast með litlu fjölskyldunni vaxa og dafna. Unnsteinn er duglegur að birta ljósmyndir af syni sínum við alls konar tækifæri. Hver veit nema að hann verði tónlistamaður eins og pabbinn eða tískufrömuður eins og mamman? 

Hann fær í það minnsta að taka þátt í alls konar verkefnum með foreldrunum ef marka má samfélagsmiðla Unnsteins. 

Unnsteinn og Ágústa hafa verið par í nokkur ár en þau fóru að rugla saman reytum árið 2014.

Börn óska þeim til hamingju með fallegu fjölskylduna. 

View this post on Instagram

😘

A post shared by UNNSTEINN (@unistefson) on Mar 30, 2019 at 7:30am PDT

View this post on Instagram

Fjölskyldumynd eftir @k_tanman

A post shared by UNNSTEINN (@unistefson) on Nov 15, 2018 at 11:49am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert