Er hún of heit svona ólétt?

Fyrirsætan Tina Kunakey sýnir óléttuna í nýju ljósi í tónlistarmyndbandi …
Fyrirsætan Tina Kunakey sýnir óléttuna í nýju ljósi í tónlistarmyndbandi Pink Noise Music.

Fyrirsætan Tina Kunakey fæddi dóttur sína í apríl á þessu ári og hefur umfjöllun um fæðingu barnsins og brúðkaup hennar og leikarans Vincent Cassel vakið umtal á undanförnum misserum.

Kunakey sem er 22 ára gömul hitti leikarann Cassel sem er 52 ára skömmu eftir skilnað hans og leikkonunnar Monica Bellucci.

Kunakey og Cassel giftu sig í lok sumars á síðasta ári og birtu síðan fallega mynd á samfélagsmiðlum af sér þar sem þau tilkynntu um væntanlegan erfingja. 

Þrátt fyrir vangaveltur um langlífi sambandsins hafa þau sýnt að aldur er greinilega afstæður og virðast þau njóta lífsins saman.

Kunakey hefur verið dugleg að birta ljósmyndir af sér frá meðgöngunni og nú nýverið birti hún ljósmynd sem tekin var fyrir tónlistarmyndband Pink Noise Music. Viðbrögðin hafa verið mikil. 

Aðdáendur hennar virðast skiptast í tvo flokka, þá sem kunna að meta ljósmyndina og síðan þá sem finnst ljósmyndin hryllileg og ekki passa við hugmyndafræði sína um þetta fallega ferli að ganga með barn og síðan að fæða það.  

Góð skilgreining á því ferli sem konur fara í gegnum við það að ganga með barn og að fæða það kemur hins vegar frá jákvæðum aðdáenda hennar:

„Líkami okkar og hugur breytist algjörlega á þeim níu mánuðum sem við göngum með barn. Að aðlagast þeirri konu sem við vorum, erum og þeirri sem við verðum er áskorun sem enginn getur ímyndað sér nema að fara í gegnum þetta ferli sjálfur. Þótt við séum ungar (eins og Kunakey) þá höfum við allar rétt á að fara í gegnum þetta ferli eins og við ákveðum að gera það, án þess að vera dæmdar af þeim sem ekki þekkja til. Jafnvel af konum sem hafa aldrei gengið með barn sjálfar......“

View this post on Instagram

@pinknoise.music Too Hot VIDEO OUT NOW LINK IN BIO @mollyconstable @phantasm.tv @mathematic.tv

A post shared by tina kunakey (@tinakunakey) on Jun 25, 2019 at 9:05am PDT




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert