Margrét Edda Gnarr og unnusti hennar, Ingimar Elíasson, eiga von á barni. Von er á barninu í janúar. Parið tilkynnti þetta á Facebook á föstudaginn.
Margrét Edda er einkaþjálfari og þekkt fitness-drottning en hún og Ingimar eru búin að vera saman í töluverðan tíma en parið skráði sig í samband á Facebook í október.
Barnavefurinn óskar þeim hjartanlega til hamingju með bumbubúann.