Tenniskonan Serena Williams sagði í viðtali við BBC að hún ráðleggi aldrei nýbökuðum foreldrum.
Williams var spurð hvaða ráð hún myndi gefa vinkonu sinni Meghan Markle og svaraði „Ég gef fólki aldrei ráð, sérstaklega þegar það er nýbúið að eignast barn. Það er svo erfitt að vera bara til. Ég hugsa bara „komist í gegnum fyrstu þrjá til fjóra mánuðina og svo getum við talað saman“,“ sagði Williams.
Williams á dótturina Olympia með eiginmanni sínum Alexis Ohanian. Markle eignaðist sitt fyrsta barn fyrir sjö vikum og hefur Williams nú þegar farið í heimsókn. Þær Williams og Markle hafa verið vinkonur síðan 2010 þegar þær hittust í Ofurskálar-partý.