Hélt lengi að hún gæti ekki orðið ólétt

Salka Sól og Arnar Freyr eiga von á barni.
Salka Sól og Arnar Freyr eiga von á barni. mbl.is/​Freyja Gylfa

Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld opnar sig á Instagram í dag um þá erfiðleika sem hún og unnusti hennar, tónlistarmaðurinn Arnar Freyr Frostason, gengu í gegnum áður en þau urðu ólétt. Í gær greindu þau frá þeim gleðifregnum að þau ættu von á barni en biðin eftir barninu var ekki auðveld eins og Salka greinir frá í dag. 

Í mörg ár hélt ég að myndi aldrei geta orðið ólétt og síðustu ár var allt reynt til að láta það gerast. Ég var sett á allskonar pillur og lyf fór í aðgerðir á eggjastokkum, en ekkert virtist ganga. Það er ótrúlegur kvíði og vanlíðan sem fylgir því komast að eigin ófrjósemi. Maður hugsar alls ekki rökrétt og allar fréttir af börnum og ólettum urðu svo erfiðar og það var mikið grátið,“ skrifaði Salka Sóla á Instagram en þau fóru að lokum í tæknifrjóvgun. 

„Við Arnar fórum svo á fund hjá Livio og ákváðum að fara í tæknifrjóvgun sem er langt og strangt ferli. Það var því svo mikill léttir þegar hún gekk hjá okkur í fyrstu tilraun eftir allar sorgina sem gekk á undan. Við náðum aðeins einu eggi sem var sett i frysti og síðan var það sett upp. Þess vegna köllum við þann sem er i bumbunni Litla Lurkinn okkar. Við getum ekki beðið eftir því að verða foreldrar þessa barns.“

View this post on Instagram

Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar🥰 Í mörg ár hélt ég að myndi aldrei geta orðið ólétt og síðustu ár var allt reynt til að láta það gerast. Ég var sett á allskonar pillur og lyf fór í aðgerðir á eggjastokkum, en ekkert virtist ganga. Það er ótrúlegur kvíði og vanlíðan sem fylgir því komast að eigin ófrjósemi. Maður hugsar alls ekki rökrétt og allar fréttir af börnum og ólettum urðu svo erfiðar og það var mikið grátið. Við Arnar fórum svo á fund hjá Livio og ákváðum að fara í tæknifrjóvgun sem er langt og strangt ferli. Það var því svo mikill léttir þegar hún gekk hjá okkur í fyrstu tilraun eftir allar sorgina sem gekk á undan. Við náðum aðeins einu eggi sem var sett i frysti og síðan var það sett upp. Þess vegna köllum við þann sem er i bumbunni Litla Lurkinn okkar. Við getum ekki beðið eftir því að verða foreldrar þessa barns. 😭❤👼

A post shared by 🔸S A L K A 🔸 S Ó L 🔸 (@salkaeyfeld) on Jul 3, 2019 at 4:40am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert