Tók á móti systrabörnum á sama degi

Systurnar voru ánægðar með fæðingardag barna sinna á fæðingardeildinni.
Systurnar voru ánægðar með fæðingardag barna sinna á fæðingardeildinni. Skjáskot/Facebook

Sumar fæðingasögur hljóma of ótrúlega til að vera sannar en það mætti einmitt segja um bandarískar systur sem eignuðust dætur á sama degi á sama spítala í New York en dagurinn var einmitt afmælisdagur föður þeirra og afa stelpnanna.

Mercy Medical Center greindi frá því á Facebook-síðu sinni að systurnar Simone og Shari áttu báðar von á stúlkum um miðjan júlí. Þær fæddu hins vegar báðar dætur fyrir tímann. Þær Liberty og Haily komu báðar í heiminn á sjötíu ára afmælisdegi afa síns eða þann þriðja júlí síðastliðinn. 

Simone sagði í sjónvarpsviðtali að hún hafi ákveðið að fara í keisaraskurðinn sinn á afmælisdegi föður síns. Það var þó algjörlega óvænt að hin afadóttirin kom í heiminn. Sami læknirinn tók á móti frænkunum og segist aldrei hafa upplifað aðra eins tilviljun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert