Ekkert sparað til í eins árs afmælishöld

Kulture ásamt foreldrum sínum í veislunni.
Kulture ásamt foreldrum sínum í veislunni. skjáskot/Instgram

Rappararnir Cardi B og Offset spara ekki krónu til þegar kemur að dóttur þeirra Kulture. Kulture litla fagnaði eins árs afmæli 10. júlí. og var haldið upp á áfangann um helgina. 

Þau hafa nú þegar gefið henni hálsmen sem kostaði 12 milljónir íslenskra króna og Cardi B samdi lag til dóttur sinnar. Það er ekki nóg fyrir þessar stórstjörnur en þau héldu upp á afmælið í New York-borg á laugardag. 

Þau hjónin leigðu sal á 400 þúsund Bandaríkjadali í New York en þemað var „Onderful Birthday.“ Fjöldi gesta mætti í partýið en uppi varð fótur og fit í um klukkustund þegar rafmagnið fór af hluta New York-borgar.

Það er ekki ljóst hversu mikið þau hjónin eyddu í veisluna en þær mæðgur voru í það minnsta í samstæðum kjólum frá Moschino.

Sú stutta var vonandi ánægð með daginn.
Sú stutta var vonandi ánægð með daginn. Instagram/skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert