Kærastan 25 árum yngri og á von á barni

Micheal Sheen er fimmtugur og á von á barni.
Micheal Sheen er fimmtugur og á von á barni. skjáskot/Youtube

Breski leikarinn Micheal Sheen á von á barni með kærustu sinni Önnu Lundberg. Lundberg sem er sænsk er 25 ára gömul en Sheen er hins vegar töluvert eldri en hún eða fimmtugur. Sheen tilkynnti gleðifréttirnar á Twittter. 

„Mjög glaður með að láta alla vita að ég og Anna kærasta mín eigum von á litlum engli. (Bara til þess að vera skýr - við eigum von á barni!),“ skrifaði Sheen á Twitter. 

Sheen á eina dóttur fyrir en hann og leikkonan Kate Beckinsale eignuðust dóttur fyrir tuttugu árum. Sheen og Beckinsale hættu saman árið 2003. Sheen og grínistinn Sarah Silverman hættu saman fyrir einu og hálfu ári en Sheen á einnig að hafa átt í sambandi við grínistann Aisling Bea þangað til í mars á þessu ári að því er fram kemur á vef Hello. Samband Sheen og Lundberg hefur því þróast hratt en það sést orðið ágætlega á Lundberg. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert