„Hann er mér eins og bróðir“

Mynd sem Jason Momoa birti á Instagram sýnir hversu góðir …
Mynd sem Jason Momoa birti á Instagram sýnir hversu góðir félagar þeir Momoa og Lenny Kravitz eru. skjáskot/Instagram

Samsettar fjölskyldur geta verið flóknar og skilnaðir farið illa með börn. Tónlistarmaðurinn Lenny Kravitz og fyrrverandi eiginkona hans, Lisa Bonet, hafa gert sitt besta til þess að láta nú þrítuga dóttur sína finna ekki fyrir erfiðum samskiptum. Kravitz segir í nýju viðtali við The Times að því er fram kemur á vef People að hann líti á eiginmann fyrrverandi konu sinnar sem bróður. 

„Þú ferð í gegnum hjónaband með einhverjum, þið hættið saman og það er mjög erfitt,“ sagði Kravitz. „En við unnum í okkar málum og tókum okkur tíma til þess að geta orðið bestu vinir aftur.“

„Ég elska eiginmann hennar, hann er mér eins og bróðir, og ég elska börnin þeirra,“ sagði Kravitz um leikarann Jason Momoa, stjúpföður dóttur sinnar. Góðu samskiptin komu þó ekki sjálfkrafa. Það tók þau tíma og vinnu að verða vinir aftur. „Það er fallegt en það krefst vinnu.“

Í sumar gekk dóttir þeirra Bonet og Kravitz, leikkonan Zoë Kravitz, í hjónaband. Þá skemmti  fjölskylda hennar sér saman eins og ein stór fjölskylda á heimili tónlistarmannsins í Frakklandi. 

Tónlistarmaðurinn talaði einnig um það í viðtali við People fyrr á árinu hvernig hann og barnsmóðir hans þurftu að átta sig á sambandi sínu upp á nýtt. 

„Svo hitti ég Jason þegar þau byrjuðu saman og ég elska hann, hann elskar barnið mitt og ég elska börnin þeirra og við erum öll eins og ein stór fjölskylda.“

View this post on Instagram

A post shared by Lenny Kravitz (@lennykravitz) on Jun 29, 2019 at 7:39am PDT





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert