Skömmuð fyrir að drekka vín í pelagjöf

Snooki ásamt börnum sínum þremur.
Snooki ásamt börnum sínum þremur. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikaþáttastjarnan Snooki fékk að heyra það frá fylgjendum sínum á Instagram eftir að hún birti mynd af sér að drekka rauðvín á meðan hún gaf tveggja mánaða gömlum syni sínum að drekka.

Snooki birti myndina af sér á Instagram og skrifaði „Hvernig er lífið með tvö börn og einn hvítvoðung? SVONA!“

Margir fylgjendur skömmuðu hana og sögðu hana vera óábyrga móður. Hún svaraði nokkrum og skrifaði meðal annars „Þú ert ekki mamma, ég leyfi mér að drekka nokkur glös af og til svo ég haldi geðheilsunni með þrjú börn. Ég geri það sem er nauðsynlegt til að hreinsa mjólkina mína fyrir barnið. Leyfðu múttu að lifa og haltu áfram að vera 17 ára,“ skrifaði hún. 

það voru þó ekki allir sem fannst athæfi hennar óviðeigandi og sögðu aðrar mömmur hana hafa hæfileika. 

Þetta er þriðja barn Snooki en fyrir á hún soninn Lorenzo 6 ára og dótturina Giovanna 4 ára.

View this post on Instagram

“What’s mom life like with 2 kids and a newborn?” THIS. #MomJuice #ImAGoodMomISwear

A post shared by Nicole "Snooki" Polizzi (@snooki) on Jul 27, 2019 at 4:26pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert