Notar bleyjur á meðgöngunni

Pretty Little Liars-stjanan Shay Mitchell á von á barni.
Pretty Little Liars-stjanan Shay Mitchell á von á barni. skjáskot/Instagram

Leikkonan Shay Mitchell á næstum því tvo mánuði eftir af meðgöngu sinni og segist þurfa að pissa svo mikið að hún er byrjuð að nota bleyjur. Mitchell greindi frá þessu í Youtube-þætti sínum um meðgönguna. 

„Ég vissi aldrei að fólk gæti pissað svona oft eins og þú gerir þegar þú ert ólétt,“ sagði Shay  og sagðist hafa farið á klósettið tuttugu og tvisvar á hálftíma í gærkvöldi. Á endanum gafst hún upp og fékk sér bleyju.

„Ég er bókstaflega í alvörubleyju,“ sagði Mitchell sem sagði það vera of pirrandi að fara svona oft á klósettið. Hafði hún einnig verið í tökum þar sem klósettið var langt í burtu. Tók hún þó sérstaklega fram að hún væri ekki að auglýsa bleyjur. 

Shay Mitchell sýndi bleyjuna.
Shay Mitchell sýndi bleyjuna. skjáskot/Youtube

„Ég pissaði á mig, ég notaði þær nokkrum sinnum og þurfti svo að henda þeim,“ sagði Mitchell um bleyjunotkunina og sagðist vera komin með nóg af klósettferðum. 

Stílistinn sem var með henni sagðist hafa gengið með þrjú börn en aldrei notað bleyjur svo vandamálið er ekki eins alvarlegt hjá öllum konum virðist vera. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert