Sonur Pitt og Jolie í suðurkóreskum skóla

Maddox ásamt foreldrum sínum árið 2013.
Maddox ásamt foreldrum sínum árið 2013. ROBYN BECK

Elsti sonur leikaranna Brad Pitt og Angelinu Jolie, Maddox Jolie Pitt, heldur nú til Suður-Kóreu til að hefja nám í lífefnafræði. 

Maddox varð 18 ára 5. ágúst síðastliðinn og hefur því háskólanám sitt í haust. Að sögn móður hans komst hann inn í fleiri skóla en valdi Yonsei-háskólann í Suður-Kóreu. 

Hann er elstur sex systkina og því sá fyrsti sem flýgur úr hreiðri foreldranna. Þau Jolie og Pitt skildu fyrr á þessu ári. Jolie mun koma til með að fylgja syni sínum út og mun svo eflaust heimsækja hann ásamt systkinum hans reglulega. 

Fjölskyldan á hús í Kambódíu sem er ekki svo langt frá Suður-Kóreu. Maddox er einnig ættleiddur frá Kambódíu, en Jolie ættleiddi hann árið 2002 þegar hann var aðeins nokkurra mánaða gamall. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert